Deildir leikskólans eru átta. Leikskólinn skiptist í þrennt, tveir gangar með þremur deildum hvor og lausar stofur með tveimur deildum, Skógur. 

  • Á yngri gangi eru deildarnar, Lundur, Brekka og Klettur. 
  • Á eldri gangi eru deildarnar, Mýri, Foss og Tjörn. 
  • Á Skógi eru Hlíð og Rjóður.

Baugur er opinn leikskóli, þ.e. að deildirnar eru ekki mjög stórar, en stór svæði skólans eru samnýtt af öllum deildum, s.s. hreyfisalur, listasmiðjur, bókasafn o.fl. Í miðju hússins er matsalur sem er nýttur af öllum deildum leikskólans.