Þátttökuaðlögun
- Foreldrarnir eru inni á deild með barninu allan tímann.
 - Foreldrar sinna barninu, skipta á því og eru til staðar. Starfsfólkið tekur að sjálfsögðu þátt og gefur sér tíma í að kynnast barninu og foreldrum.
 - Aðlögun tekur fimm daga að öllu jöfnu.
 - Dagur eitt og tvö, mæting klukkan 8:30 og fram að hádegismat.
 - Þriðja daginn er mæting klukkan 8:30, foreldrar kveðja barnið fljótlega. Barnið fer í mat og hvíld með starfsmönnum, foreldrar eru til taks ef þarf. Heimferð þegar barn vaknar.
 - Fjórða og fimmta daginn koma foreldrar með barnið sitt og kveðja. Börnin eru í leikskólanum fram yfir kaffitíma eða til klukkan 14:30/15:00 þá daga.
 - Farsímar eru ekki leyfðir.
 - Aðlögunin er einstaklingsbundin og getur breyst eftir þörfum hvers og eins.
 
Hugmyndafræðin á bak við þátttökuaðlögun er að öruggir foreldrar smiti eigin öryggiskennd yfir til barna sinna. Öruggir foreldrar = örugg börn. Með því að foreldrar séu fullir þátttakendur frá fyrsta degi öðlast þeir öryggi um dagskipulagið og það sem á sér stað í leikskólanum. Annar kostur er að foreldrar tengjast hver öðrum og milli þeirra skapast oft vinskapur.