Lestur bóka fyrir börn
Bókalestur
Ein besta leiðin til að auka orðaforða, málskilning og máltjáningu barna er í gegnum lestur og er æskilegt að lesa stutta stund á hverjum degi. Bækur þurfa að vera hluti af daglegu umhverfi barna til að þau læri að njóta þeirra. Þegar lesið er fyrir börn er nauðsynlegt að íhuga eftirfarandi atriði:
- Gott er að bækurnar séu myndrænar til þess að hægt sé að nota þær til að auðga ímyndunaraflið
- Efni bókarinnar þarf að hæfa aldri þeirra og þroska
- Ekki er endilega alltaf nauðsynlegt að lesa texta bókarinnar heldur frekar að skiptast á að benda og nefna
- Gott er að hafa bækurnar frekar stuttar svo barnið endist í að hlusta
- Gefið barninu tækifæri til að ræða um atburði og persónur sögunnar. Sögur geta hjálpað barninu til að skilja tilfinningar sínar og annarra.
- Hvetjið barnið til að spyrja ef þau skilja ekki
- Útskýrið ný/erfið orð
- Látið það segja frá því sem var t.d. lesið í gær
- Látið þau spá fyrir um hvað þau halda að gerist næst með því að skoða myndirnar fyrst – ræðið síðan um það í lokin hvort þau spáðu rétt
- Bendið á löng og stutt orð
- Endurtakið lýsingar barnsins þannig að það heyri rétta setningarskipan og orðmyndir
- Heimsóknir eldri barna á bókasöfn ættu að vera fastur liður í lífi leikskólabarna. Þannig kynnast þau veröld bóka, hvernig hægt er að fá bækur á láni og að þeim verði skilað aftur.
- Reynið að auka úthald og einbeitingu smám saman við bókalestur með þvi að sitja ekki of lengi í einu svo að barnið missi ekki áhugann. Hrósið þegar barnið situr kyrr og hlustar
- Einnig skal segja barninu sögur og ævntýri frá eigin brjósti. Það er persónulegt tjáningarform sem nær athygli barnsins betur en upplestur úr bók. Sögumaður er í nánari tengslum við barnið og frásögnin er oft meira lifandi en þegar lesið er.
Brynja Jónsdóttir, talmeinafræðingur